Ruglið mitt í beinni

Ruglið mitt í beinni

Open Sesame

Daglegt bullPosted by Katrín 03 May, 2010 10:23:15

Jæja þá er loksins búið að opna þessa blessuðu síðu aftur, alveg fáránlegt að þeir skulu geta leyft sér að loka síðunni af því að þeir telja sig vera með rangt heimilisfang. (þeir eru ss one.com sem reka síðuna)

En ég nenni nú ekki að væla yfir þessu lengur, síðan komin í lag og núna get ég haldið áfram að vera dugleg að skrifa hahahaha af því að ég er alltaf svo dugleg eða þannig en ég fékk kvartanir yfir því að http://uppskriftir.katosk.com væri ekki í lagi þannig að ég veit að það er einhver að skoða hana :)

  • Comments(0)http://www.katosk.com/#post70

21 vika + 4 dagar

LaumufarþeginnPosted by Katrín 25 Mar, 2010 00:53:10

Jæja þá er baunin, krílið, laumufarþeginn, Skarphéðinn Skúli (ekki komin með fleiri nöfn á bumbuna) kominn með sína eigin heimasíðu þar sem mér finnst þessi vera svona eiginlega bara MÍN ;) ekki það að ég ætla nú samt að halda áfram að tala um laumufarþegann hérna sko en á http://www.nino.is/baunin snýst allt um þennan ófædda ;)

Endilega sendið mér línu ef þið viljið leyniorðið á síðuna en fyrir glögga er það millinöfn okkar Kristján en ekki með íslenskum stöfum.

Nema hvað að í dag fórum við í skoðun og ég er ss komin 21 viku og 4 daga í dag, mér finnst svo fyndið hvað þetta er allt nákvæmt upp á dag. Allt leit rosalega vel út drengurinn með eðlilegan hjartslátt og bumban var mæld í fyrsta skipti. Mældist 18 cm þar sem lífbeinið liggur ofarlega en yfirleitt á þetta víst að fylgjast að þ.e. lengd meðgöngu og sentimetrar bumbunnar eða hvað þetta er nú sem er mælt. Fékk líka að vita að ástæða þess að það sést svona lítið á mér er að ég er með svo stífa magavöðva þannig að öll vinnan í Boot Camp er að skila sér hehehe.

Kristján greyið er voðalega duglegur að koma með mér í skoðanir en ég tók samt eftir því í dag að það er eins og maðurinn sé ósýnilegur, mér finnst einhvern vegin aldrei yrt á hann. Í dag kom t.d. inn læknir og hún tók bara í höndina á mér og kynnti sig, halló hann á nú líka þetta barn, frekar spes og mér finnst ekkert skrítið að feðrum finnist þeir soldið útundan á meðgöngu.

Sjálfri er mér farið að líða svona 1000 sinnum betur eftir þessa blessuðu aðgerð sem ég fór í en má samt ekki byrja að vinna fulla vinnu strax sem mér finnst smá glatað en maður verður víst að fara eftir því sem doksi segir og láta heilsuna ganga fyrir ekki satt :)

  • Comments(0)http://www.katosk.com/#post69

Skarphéðinn Skúli

LaumufarþeginnPosted by Katrín 12 Mar, 2010 11:56:26

Jæja þá er 20 vikna skoðunin búin og Skarphéðinn Skúli er mættur á svæðið sprækur sem lækur. Ég var nottulega pottþétt á því að þetta væri strákur og ég er ekki frá því að þetta verði fótboltakall þar sem spörkin eru þvílík að ég held stundum að barnið ætli út hehehe en þetta er bara æðislegt. Hérna koma svo myndirnar úr 20 vikna sónarnum. Hann er nú ekkert svakalega mikið fyrir að láta taka myndir af sér því hann var bara á fleygiferð allan tímann ;)

Á fyrstu myndinni má sjá tásurnar rétt fyrir ofan höfuðið og á mynd nr.2 eru bara tásur og svo er aðeins verið að teygja úr hálsinum á síðustu myndinni :)

  • Comments(2)http://www.katosk.com/#post68

Knock knock, who´s there?

LaumufarþeginnPosted by Katrín 03 Mar, 2010 20:10:57
Fann allt í einu í morgun eitthvað skrítið í gangi í maganum á mér og viti menn laumufarþeginn var bara svona aðeins að láta vita af sér og alveg heillengi. Þetta var ferlega krúttlegt og ég nottulega brosti út að eyrum, vantaði bara einhvern til að finna þetta með mér hehehe en þetta á nú eftir að gerast miklu oftar :)

  • Comments(0)http://www.katosk.com/#post67

Yndisleg helgi

Daglegt bullPosted by Katrín 21 Feb, 2010 20:53:33

Vá hvað mér finnst æði að vera hætt að vinna um helgar og sérstaklega þegar helgarnar eru eins og þessi helgi er búin að vera.

Skellti mér í sumarbústað með skvísunum mínum úr sundlfjélaginu ISST (Icelandic Syncronized Swimming Team) og átti frábært föstudagskvöld með þeim þar sem við spjölluðum um allt milli himins og jarðar og fórum í skemmtilega leiki. Ótrúlegt hvað við náum endalaust að skemmta okkur saman hehe

Nú laugardagurinn fór í afmælisveislur (barnaafmæli) og svo var mér boðið í spilakvöld þar sem ég lærði frábært spil sem maður þarf verulega að pæla í hlutunum til að verða besti bóndinn ;) minnir að spilið heiti Agricola. Mæli endregið með því.

Dagurinn í dag fór svo í mestu leti ever þar sem rúmið mitt var í fyrsta sæti og sjónvarpið í öðru hehehe yndislegt alveg en það var nú líka gott að skella sér í smá gönguferð eftir alla þessa legu og í kaffi hjá brósa og frú í franska súkkulaðiköku. Veðrið var nottulega yndislegt þó það hafi verið soldið gluggalegt en þá er bara að herða á göngunni til að ná sér í smá hita hehehe

Kristján fékk smá flashback úr fortíðinni að labba um bæinn síðan hann bjó hérna enda margt breytt síðan þá. Myndin sýnir það kannski ekki en hún sýnir allaveg hvað það var gott veður hehehe

  • Comments(0)http://www.katosk.com/#post66

Hvernig varðstu eiginlega ólétt?

LaumufarþeginnPosted by Katrín 01 Feb, 2010 22:52:39

Heimasætan spurði mig þessarar spurningar um daginn og Heiða sagði "þú veist nú alveg hvernig börnin verða til", þá horfði hún á mig sposkum svip og sagði svo "gerðir þú svoleiðis?" hahahaha krúttleg þessi börn.

En já nú ætti að vera óhætt að skrifa eitthvað um þetta á netið þó ég fari nú kannski ekki að blasta því á fésinu enda komin 14 vikur á leið. Ég lofaði því að ég myndi skrifa eitthvað meira í þetta blogg en ég hef gert upp á síðkastið þannig að ætli þetta verði ekki heitasta topic síðunnar næstu mánuði allavega ;)

Mér líður annars bara mjög vel og þetta gengur fínt, verst finnst mér að maður passar ekki lengur í fötin sín en það hlýtur nú að venjast hahaha

Læt fylgja fyrstu myndirnar af krílinu, soldið mikill munur á 8 vikna og 12 vikna.

  • Comments(0)http://www.katosk.com/#post65

2010

Daglegt bullPosted by Katrín 03 Jan, 2010 03:12:38

Vá það er komið 2010!! Ég var nú ekki dugleg við skriftir hérna árið 2009 þannig að er ekki barasta ágætt að nýársheitið mitt verði að skrifa oftar á þessa síðu :) Ekki það að það les þetta sennilega enginn en ég ætla samt að reyna að byrja aftur og vera duglegri við það. Mikið að fara að gerast á nýja árinu sem maður verður nú að dokkjúmentara ekki satt ;)

Annars bara Gleðilegt nýtt ár!!!

  • Comments(3)http://www.katosk.com/#post64

Miðbæjarrotta

Daglegt bullPosted by Katrín 10 Sep, 2009 00:14:01

Ég held ég sé búin að finna það út að mig langar að verða miðbæjarrotta!! Loksins fann ég hvað mig langar að verða þegar ég er orðin stór hehehe en svona í alvöru talað þetta myndi henta mér rosalega vel konunni á mínum aldri sem er laus og liðug og gæti setið öll kvöld á einhverjum góðum tónleikum í miðbænum og haft það næs :)

Ég fór ss á tónleika í kvöld með Kristjönu Stefáns og Ragnheiði Gröndal og VÁ þeir voru geggjaðir!!! Bara langt síðan ég hef farið á svona góða tónleika enda voru ekki lélegir heldur undirleikararnir sko, Eyþór Gunnars, Róbert Þórhalls og Guðmundur Péturs og ég fékk bara allt í einu svona tilfinningu um að ég ætti bara að búa í miðbænum, fara á tónleika og fá mér hvítvínsglas eða bjór með ef ég væri þá líka millionaire í leiðinni, what a life hehehe

  • Comments(1)http://www.katosk.com/#post63
Next »